Álfrún Örnólfsdóttir
(Endurbeint frá Álfrún Helga Örnólfsdóttir)
Álfrún Helga Örnólfsdóttir (f. 23. mars 1981) er íslensk leikkona, leikstjóri og handritshöfundur.[1] Álfrún fór með aðalhlutverk í kvikmyndinni Dís frá árinu 2004 eftir Silju Hauksdóttur. Fyrsta kvikmynd eftir Álfrúnu er heimildarháðmyndin Band sem fjallar um gjörningahljómsveitina The Post Performance Blues Band, en Álfrún er einn meðlima hennar. Álfrún hefur einnig ljáð mörgum hljóðbókum á Storytel rödd sína.[2]
Álfrún Helga Örnólfsdóttir | |
---|---|
Fædd | 23. mars 1981 |
Störf | Leikkona, leikstjóri, handritshöfundur |