Áfram Latibær! (leikrit)

barnaleikrit

Áfram Latibær! er barnaleikrit eftir Magnús Scheving sem er byggt á samnefndri bók höfundarins. Leikritið var frumsýnt árið 1996 í Loftkastalanum og naut mikilla vinsælda. Baltasar Kormákur leikstýrði en með hlutverk fóru Magnús Scheving, Selma Björnsdóttir, Steinn Ármann Magnússon, Ingrid Jónsdóttir, Jón Stefán Kristjánsson, Ólafur Guðmundsson, Magnús Ólafsson, Sigurveig Jónsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Ari Matthíasson Pálína Jónsdóttir, Þórhallur Ágústsson og Guðmundur Andrés Erlingsson.

Áfram Latibær!
LeikstjóriBaltasar Kormákur
HandritshöfundurMagnús Scheving
LeikararSelma Björnsdóttir
Magnús Scheving
Steinn Ármann Magnússon
Ingrid Jónsdóttir
Jón Stefán Kristjánsson
Ólafur Guðmundsson
Magnús Ólafsson
Sigurveig Jónsdóttir
Sigurjón Kjartansson
Ari Matthíasson
Pálína Jónsdóttir
Þórhallur Ágústsson
Guðmundur Andrés Erlingsson
TónlistMáni Svavarsson
Magnús Scheving
Frumsýning1996
FramhaldGlanni glæpur í Latabæ

Söguþráður

breyta

Sagan fjallar um íbúa Latabæjar sem eru hin mestu letiblóð og hugsa ekkert um heilsuna. Bæjarstjóranum þykir þetta afar slæmt því hann hefur nýlega fengið bréf um að halda skuli íþróttahátíð í Latabæ þar sem bæjarbúar eiga að keppa í hinum ýmsu greinum. Eftir árangurslausa tilraun til að fá íbúa bæjarins til þess að taka þátt á hátíðinni er bæjarstjórinn við það að gefast upp en þá kemur sjálfur íþróttaálfurinn til bjargar. Íþróttaálfurinn hvetur bæjarbúa til að hreyfa sig og kennir þeim hvernig á að lifa heilbrigðari lífsstíl.

Hlutverk

breyta
Leikari Persóna
Magnús Scheving Íþróttaálfurinn
Selma Björnsdóttir Solla stirða
Steinn Ármann Magnússon Siggi sæti
Ingrid Jónsdóttir Halla hrekkjusvín
Jón Stefán Kristjánsson Goggi mega
Ólafur Guðmundsson Nenni níski
Magnús Ólafsson Bæjarstjórinn
Sigurveig Jónsdóttir Stína símalína
Sigurjón Kjartansson Maggi mjói
Ari Matthíasson Lolli lögga
Pósturinn
Pálína Jónsdóttir Eyrún eyðslukló
Þórhallur Ágústsson Þjófur 1
Guðmundur Andrés Erlingsson Þjófur 2

Lögin

breyta