Zenon frá Tarsos
Zenon frá Tarsos (forngríska: Ζηνων) var stóískur heimspekingur og nemandi Krýsipposar. Hann tilheyrði tímabili miðstóuspekinnar. Zenon nam ásamt Díogenesi frá Babýlon og Antípater frá Tarsos.
Kenningar Zenons í stóuspeki eru ókunnar en hann tók við af Krýsipposi. Díogenes tók síðar við af Zenoni en ekki er vitað hve lengi Zenon var í forsvari fyrir stóuspekina.
Svo virðist sem hann hafi fallist á allar kenningar stóuspekinnar fyrir utan að hann hafnaði því að heimurinn myndi farast í eldi.
Tengt efni
breytaHeimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Zeno of Tarsus“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. mars 2006.
Þessi fornfræðigrein sem tengist heimspeki er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.