Wikipedia:Félag Wikimedianotenda á Íslandi/100araafmkosningarettarkvenna
Félagið hefur sótt um og fengið styrk til að vinna verkefni vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi. Í samvinnu við Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna mun félagið halda vikulega Wikipediahittinga í Landsbókasafni Íslands þar sem ætlunin er að þátttakendur bæti greinar sem fjalla með einum eða öðrum hætti um kvenréttindi. Umfjöllunin þarf þó ekki að vera bundin við íslensk viðfangsefni né heldur kvenréttindi, frjálst er að mæta og fjalla um hvað sem er.
Á staðnum verða leiðbeinendur sem munu aðstoða við tæknilega hlið þess að vinna í Wikipediu. Þar verður einnig aðgengilegt safn heimilda sem tengjast kvenréttindabaráttu, bæði á Íslandi og víðar. Allir eru velkomnir. Ekki þarf annan grunn en að kunna á lyklaborð og áhugann á því að taka þátt. Upplýsingarnar á Wikipediu eru sameign okkar allra og einnig verk okkar allra. Leiðbeinandi dagskrá fylgir hér:
Tímabil | |
Febrúar | Landnám-1850 |
Mars | 1850-1900 |
Apríl | 1900-1950 |
Maí | 1950-2000 |
Júní | 21. öldin |
Tekið skal fram að ekki er skylt að fjalla um efni tengd kvenréttindabaráttu á hittingum.
Hittingunum er nú lokið.
Myndir frá 7. júlí 1915
breyta-
Fólk safnast saman á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Kona undirbýr skrúðgöngu grunnskólastelpna frá portinu við Barnaskólann að Austurvelli þann 7. júlí 1915 í tilefni af að konur höfðu fengið kosningarétt.
-
Fólk safnast saman á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Skrúðganga á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Skrúðganga í Bankastræti 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Fólk safnast saman á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Fólk safnast saman á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Bríet Bjarnhéðinsdóttir heldur ræðu á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Fólk safnast saman á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Fólk safnast saman á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
-
Grunnskólastelpur safnast saman í porti Barnaskólans 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.
Myndir fengnar í tilefni af 100 ára kosningarréttarafmælinu
breyta-
Fyrsti valtarinn sem kom til landsins var nefndur „Bríet Knútsdóttir” í höfuðið á Bríeti Bjarnhéðinsdóttur bæjarfulltrúa og Knud Zimsen borgarsjtóra. Hér er hann staddur í Pósthússtræti haustið 1917.
-
Portrettmynd af Ingibjörgu H. Bjarnason.
-
Portrettmynd af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur.
-
Kvenréttindadeginum fagnað 19. júní 1919.