Vogunarsjóður
Vogunarsjóður er oftast haft um sjóð sem notar lántöku eða svokallaða skortstöðu í tilteknum eignum til að afla fjár til kaupa á öðrum eignum. Vogunarsjóðir eru lokaðir fjárfestingarsjóðir sem, ólíkt hinum hefðbundnu verðbréfasjóðum, hafa heimildir til að beita margvíslegum fjárfestingaraðferðum við að ná hámarksávöxtun að teknu tilliti til áhættunnar sem sjóðsfélagar eru tilbúnir að taka.
Þann 23. mars 2008 var grein í breska blaðinu Sunday Telegraph, sem sagði frá því, að íslensk stjórnvöld gerðu allt til að koma í veg fyrir hrun efnahagslífsins, og héldu því fram að Ísland hefði orðið illa fyrir barðinu á lausafjárkreppunni, sem þá var að koma í ljós, og haft eftir ónafngreindum sérfræðingi að landið væri meðhöndlað eins og það væri eitraður vogunarsjóður. [1]