Vientiane er höfuðborg Laos. Áætlaður íbúafjöldi er um 350.000, en á stórsvæðinu er talið að búi um 754.000 manns (2009). Nafn borgarinnar er komið frá palí, tungumálinu sem notast er við í ritum Theravadabúddisma. Upprunaleg merking þess er „sandelviðarþyrping konungsins“.