Vetrarólympíuleikarnir 1980
Vetrarólympíuleikarnir 1980 voru 13. vetrarólympíuleikarnir. Þeir voru settir 14. febrúar 1980 í Lake Placid í New York-fylki í Bandaríkjunum. 37 þjóðir sendu fulltrúa á leikana. Sovétríkin voru sigursælust með tíu gullverðlaun, sex silfur og sex brons. Ísland sendi sex skíðamenn á leikana: þrjá keppendur í svigi og þrjá í skíðagöngu.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Vetrarólympíuleikunum 1980.