Veldisvöxtur
Veldisvöxtur eða vísisvöxtur nefnist vaxtarferill breytu sem vex í hlutfalli við stærð sína (sem veldisfall). Þessu má lýsa með eftirfarandi jöfnu fyrir vöxt breytunnar x (hvort sem vöxturinn er jákvæður eða neikvæður) eftir því sem tíminn t líður með jöfnu bili heillra talna (það er að segja 0, 1, 2, 3, ...):
þar sem x0 er gildi x á tímapunktinum 0. Sem dæmi, miðað við vaxtarhraðann r = 5% = 0.05, burtséð frá gildi tímabreytunnar þýðir að x verði 1.05 sinnum (eða 5%) stærri en það var.
Einföld leið til að sjá veldisvöxt er að slá inn tölu í reiknivél og margfalda hana með sjálfri sér aftur og aftur. Ef þú slærð til dæmis inn 1.05 í reiknivél og margfaldar töluna tíu sinnum með sjálfri sér með því að ýta endurtekið á "=" takkann ætti útkoman að verða 1.63. Það má túlka þannig að 5% ársvextir verða að 63% hækkun á tíu árum.
Við kjöraðstæður fjölga bakteríur sér með veldisvexti.