Vanheimild
Vanheimild er réttarágalli er felst í því að kröfuhafinn fær ekki umsamda réttarstöðu í samningi sínum við viðsemjanda sökum ósamrýmanlegra réttinda þriðja aðila.
Fullkomin vanheimild og vanheimild að hluta
breytaFullkomin vanheimild á sér stað þegar skuldarinn á ekki þá eign sem hann seldi en þá eignast kröfuhafi engan rétt og samningurinn gæti þá fallið niður. Vanheimild að hluta á sér stað þegar skuldarinn á beinan eignarrétt að viðkomandi eign en þriðji aðili á einhver óbein eignarréttindi að henni, svo sem á grundvelli áhvílandi veðs eða fjárnáms.
Upphafleg og eftirfarandi vanheimild
breytaUpphafleg og eftirfarandi vanheimild er flokkun vanheimildar eftir því hvort hún var til staðar við stofnun samnings (upphafleg) eða hvort til hennar stofnaðist síðar (eftirfarandi).