Vítaspyrnukeppni (knattspyrna)
aðferð til að útkljá leik
(Endurbeint frá Vítakeppni)
Vítaspyrnukeppni í knattspyrnu er þegar bæði lið er jafn bæði eftir venjulega leiktíma, 90 mínútur, og framlengingu.
Ferli
breyta- Liðið velur með þjálfara sínum í hvaða röð menn liðsins eiga að spyrna. Ef annað liðið hefur færri leikmenn velur hitt liðið einn leikmann hjá sér sem má ekki spyrna annan en markvörðinn.
- Kastað er upp peningi hvort liðið skal spyrna fyrstu spyrnunni og á hvort markið skal skjóta á.
- Ef lið A vinnur peningakastið tekur sá sem er fyrstur í röðinni hjá liði A fyrstu spyrnuna. Markvörður í liði B stendur í markinu.
- Allir leikmenn, aðrir en markmenn og leikmaðurinn sem á að spyrna, eiga að vera á miðjum vellinum.
- Fyrsti leikmaður í liði B tekur svo næstu spyrnu og markvörður í liði A stendur í markinu.
- Annar leikmaður í liði A tekur þriðju spyrnuna og svo að koll af kolli þangað til 10 spyrnur hafa verið spyrntar, 5 spyrnur hjá liði A og 5 hjá liði B.
- Ef liðin hafa skorað jafn mörg mörk eftir allar 10 spyrnurnar verður framlenging á vítaspyrnukeppninni.
- Þá skýtur sjötti leikmaður í liði A. Ef hann...
- skorar þarf 6. leikmaður í liði B að skora úr sinni spyrnu, annars sigrar lið A. Ef hann skorar heldur framlengingin áfram með sjöundu menn liðanna.
- skorar ekki þarf 6. leikmaður í liði B að skora úr sinni spyrnu til að lið B sigrar. Ef hann skorar ekki heldur framlengingin áfram með sjöundu menn liðanna.
- Svona heldur vítuspyrnukeppnin áfram þangað til annað liðið hefur sigrað. Ef allir í röðinni hafa spyrnt sínum spyrnum er byrjað aftur á fyrstu mönnum í hvori liði.