Hóffífill
(Endurbeint frá Tussilago farfara)
Hóffífill (fræðiheiti: Tussilago farfara) er fjölær jurt sem vex gjarnan í röskuðum jarðvegi og í vegarköntum um allt norðurhvel jarðar. Hóffífill blómstrar snemma á vorin. Blómin eru gul og sitja efst á þykkum stönglum sem eru alsettir litlum mjóum blöðum. Við rótina vaxa svo stór og þykk blöð eftir blómgun.
Hóffífill | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Tussilago farfara L. |
Hóffífill hefur verið notaður í grasalækningum en inniheldur eiturefni í blómknúppnum.[1] Inniheldur eiturefni sem hefur pyrrolizidin kjarna. Fyrstu eitrunareinkenni eru magakrampar, ógleði og uppköst. Síðkomin einkenni eru meðal annars lifrarstækkun, skorpulifur vökvasöfnun í kviðarholi og jafnvel krabbamein Mikið magn hóffífils bendir til mikils magns af kalíum og magnesíum í jarðvegi.
Tilvísanir
breyta- ↑ Þóra Ellen Þórhallsdóttir. „Vísindavefurinn: Hvaða plöntur á Íslandi eru eitraðar?“.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hóffífill.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Tussilago farfara.