Tungusveit (Strandasýslu)

Tungusveit er heiti á sveitinni sem liggur sunnan megin við Steingrímsfjörð á Ströndum og nær frá Kollafjarðarnesi yst við norðanverðan Kollafjörð að Hrófá, skammt utan við Hólmavík. Sveitin heitir eftir bænum Tröllatungu[1][2] þar sem farið er upp á Tröllatunguheiði þar sem landnámsmaðurinn Steingrímur trölli á að hafa reist bæ sinn.

Austasti hluti strandlengjunnar að Kollafjarðarnesi nefnist Gálmaströnd.

Tilvísanir

breyta
  1. G. O. Oddsen (Gunnlaugur Oddsson) (1822). Almenn landaskipunarfræði eðr Geographia II. Kaupmannahöfn: Hið íslenzka bókmenntafjelag. bls. 241.
  2. Torfi Guðbrandsson (1971). „Minning: Jón Halldór Jónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri frá Tröllatungu“. Íslendingaþættir Tímans. 4 (12): 23.
   Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.