The Pirate Bay
The Pirate Bay er sænsk torrent-síða sem var stofnuð árið 2003 af Piratbyrån en síðan hefur verið rekin sjálfstætt síðan 2004. The Pirate Bay kallaði sig „stærstu BitTorrent-síðu heims“[1] og taldist 123. vinsælasta vefsíða heims samkvæmt mælingum Alexa Internet árið 2008.[2]
31. mars 2006 leitaði lögreglan í Stokkhólmi í húsnæði félagsins og gerði vefþjóna upptæka en það olli því að síðan virkaði ekki í þrjá daga.[3] Fyrirtækið hefur nokkrum sinnum komið fyrir dómstóla vegna gruns um brot á höfundaréttalögum og til þess að sækja eigin mál. 15. nóvember 2008 tilkynnti The Pirate Bay að vefsíðan hefði alls 25 milljónir deilenda.[4]
Tilvísanir
breyta- ↑ Pfanner, Eric (31. janúar 2008). „Swedes charge 4 in case involving copyright infringement of music and films“. International Herald Tribune. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. febrúar 2008. Sótt 22. nóvember 2008.
- ↑ „Thepiratebay.org - The Pirate Bay“. Alexa Internet. Afrit af upprunalegu geymt þann 19. apríl 2012. Sótt 1. október 2008.
- ↑ „Two years and still going“. The Pirate Bay. 31. maí 2008. Sótt 29. september 2008.
- ↑ „25 million!“. thepiratebay.org. 15. nóvember 2008.
Tenglar
breyta- HeimasíðaGeymt 19 febrúar 2009 í Wayback Machine