Tölustafur
Tölustafur er í stærðfræði einn bókstafur eða tákn, sem stendur fyrir tölu. Flestar tölur eru táknaðar með einum eða fleiri tölustöfum. Talan 7 er t.d. táknuð með einum tölustaf en táknið sem stendur fyrir töluna 77 er samsett úr tveimur tölustöfum. Tölur eru einnig táknaðar með almennum brotum, tugabrotum og bókstöfum, eins og t.d. talan pí, sem er táknuð með gríska bókstafnum π.