Suffocation er bandarísk dauðarokks-hljómsveit. Hljómsveitin var stofnuð 1990 og hefur síðan gefið frá sér margar hljómplötur, þar á meðal fyrsta geisladiskinn sem var gefinn út hjá útgáfufyrirtækinu Relapse Records, EP plötuna Human Waste.

Suffocation tók upp plöturnar Human Waste, Effigy of the Forgotten, Breeding the Spawn, Pierced from Within, og Despise the Sun áður en þeir hættu árið 1998. Suffocation komu aftur saman árið 2003, og með þeim var þá upprunalegi trommari hljómsveitarinnar Mike Smith. Hljómsveitin gaf frá sér Souls to Deny árið 2004 og fór á heimstónleikaferðalag til að koma nýju plötunni á framfæri. Eftir yfir 200 tónleika tók hljómsveitin upp sinn fyrsta tónleikadisk og gaf hann út undir heitinu Close Of A Chapter: Live In Quebec City. Sjálf-titluð plata var gefin út árið 2006 af Relapse Records, og í kjölfarið fylgdi heimsferðalag. Árið 2007 voru Suffocation fengnir í auglýsingu fyrir History Channel þáttinn The Dark Ages.[1]

Þann 4. júní 2007 skildu leiðir Suffocation og útgáfufyrirtækisins sem þeir höfðu verið hjá fram til þess, Relapse Records.[2] Hvað sem því líður þá er hljómsveitin enn starfandi.

Stíll og áhrif

breyta

Suffocation fullkomnuðu ríkjandi taktstíla eldri dauðarokkshljómsveita með flóknum lagabyggingum og melódískri næmni. Þeir eru jafnan sagðir hafa fundið upp brutal death metal-undirflokkinn og kynntu til sögunnar marga nýja hluti. Til að bæta við það, hafa flóknar lagabyggingar þeirra og hljóðfæraleikur þeirra verið áhrifarík í þróuninni á tæknilegur dauðarokki. Þar af leiðandi er þeim oft lýst sem „brutal technical death metal“ og eru skráðir sem slíkir á The Metal Archives.[3]

Suffocation er sett við hliðiná hljómsveitum eins og Immolation, Mortician og Incantation sem verandi partur af death metal senu sem kallast „New York death metal“ eða „NYDM“. Þrátt fyrir það hefur hver og ein þessara hljómsveita mjög mismunandi hljóm og þar af leiðandi er NYDM notað aðallega til að lýsa New York senunni á tíunda áratugnum en ekki neinum ákveðnum stíl.

Diskar

breyta

Stúdíó-plötur

breyta

Aðrar plötur

breyta
  • Reincremated (demo, 1990)
  • Human Waste (EP, 1991)
  • Live Death (Split, 1994)
  • Despise the Sun (EP, 1998)
  • Live in Quebec - The Close of a Chapter (tónleika plata, 2005)

Meðlimir

breyta

Núverandi meðlimir

breyta
  • Frank Mullen - söngur (1990–1998, 2003–Í dag)
  • Terrance Hobbs - gítar (1990–1998, 2003–Í dag)
  • Guy Marchais - gítar (1990, 2003–Í dag)
  • Derek Boyer - bassi (2004–Í dag)
  • Mike Smith - trommur (1990–1994, 2003–Í dag)

Fyrrverandi meðlimir

breyta
  • Doug Cerrito - gítar (1990–1998)
  • Josh Barohn - bassi (1990–1993, 2003)
  • Chris Richards - bassi (1992–1998)
  • Doug Bohn - trommur (1994–1996)
  • Dave Culross - trommur (1996–1998)
  • Kevin Talley - trommur (1998 túr aðeins)
  • Todd German - gítar (1990 leystur af hólmi af Doug Cerrito)

Tilvísanir

breyta
  1. „Artclie @ Heavily Caffeinated“. Afrit af upprunalegu geymt þann 11. október 2007. Sótt 5. maí 2008.
  2. Article @ Lambgoat
  3. http://www.metal-archives.com/band.php?id=119

Tenglar

breyta