Suðurumdæmi (Ísrael)
Suðurumdæmi (hebreska: מחוז הדרום, Meḥoz HaDarom; arabíska: لواء الجنوب) er eitt af sex umdæmum Ísraels. Það er landfræðilega stærsta en strjálbýlasta umdæmið. Íbúafjöldinn árið 2023 var 1.362.500.[1] Höfuðborg umdæmisins er Beersheba en stærsta borgin er Ashdod. Negeveyðimörkin þekur meirihluta héraðsins.