Straumönd
Straumönd (fræðiheiti: Histrionicus histrionicus) er fugl af andaætt. Straumönd er staðfugl á Íslandi og verpir um nær allt land, en mest í kringum Mývatn. Þar er líklegasta þéttasta straumandarvarp í heimi. [heimild vantar]. Straumendur eru algengar með annesjum landsins yfir vetrarmánuðina. Þegar fer að vora færir hún sig innar í firði og við árósa. Á vorin eru oft nokkrir karlfuglar um hvern kvenfugl. Karlfuglar byrja að fella fjaðrir í júlí og hópa sig saman. Straumendur eru alfriðaðar.
Straumönd | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Histrionicus histrionicus (Linnaeus, 1758) | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Ocyplonessa |
Straumendur eru flækingar í Vestur-Evrópu utan Íslands. Þær verpa í norðaustur-Asíu og Norður-Ameríku.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist straumönd.
Wikilífverur eru með efni sem tengist straumönd.