Strútsfoss
Strútsfoss er í Villingadal sem er inn af Suðurdal í Fljótsdal
Fossinn er tvískiptur, neðri fossinn er um 100 metra hár og efri fossinn um 20 metrar. Neðan við fossinn rennur Strútsá í Strútsgili. Talið er að fossinn dragi nafn sitt af strýtulaga klettadröngum í gilinu. Strútsgil er samansett af basalthrauni, setlögum og má þar finna mikið af rauðum og gulbrúnum millilögum[1].
GönguleiðinBreyta
Gengið er frá bílastæði í landi Sturluflatar, innstabæ í Suðurdal í Fljótsdal. Fossinn sést ekki vel fyrr en komið er býsna langt inn Villingadal. Hægt er að komast alveg upp að fossinum þegar að lítið vatn er í Strútsánni síðsumars. Þá þarf að vaða ánna nokkrum sinnum sem getur verið varhugavert. Einnig er hægt að ganga upp á brúnir norðan við fossinn[1].
Gönguleiðin er um 8,5 kílómetrar og 229 metra hækkun. Hún er nokkuð auðveld, fremur aflíðandi og greinileg[2][1].
TilvísanirBreyta
Aldeyjarfoss • Álafoss • Barnafoss • Bjarnafoss • Brúarfoss • Dettifoss • Dynjandi • Dynkur • Fagrifoss • Fardagafoss • Faxi • Foss á Síðu • Glanni • Gljúfrabúi • Gljúfrasmiður • Glymur • Goðafoss • Gullfoss • Granni • Grundarfoss • Hafragilsfoss • Háifoss • Hengifoss • Hjálparfoss • Hraunfossar • Írárfoss • Kringilsárfoss • Laxfoss (Grímsá) • Laxfoss (Norðurá) • Litlanesfoss • Mígandi • Morsárfoss • Ófærufoss • Rauðsgil • Rjúkandi • Sauðárfoss • Selfoss • Seljalandsfoss • Skógafoss • Strútsfoss • Svartifoss • Tröllafoss (Leirvogsá) • Tröllafossar • Tröllkonuhlaup • Urriðafoss • Þjófafoss • Þórðarfoss • Þórufoss • Öxarárfoss
- ↑ 1,0 1,1 1,2 User, Super. „Hengifoss.is“. Hengifoss.is. Sótt 4. apríl 2021.
- ↑ „Strútsfoss“. www.ferdaf.is. Afrit af upprunalegu geymt þann 19. apríl 2021. Sótt 4. apríl 2021.