Staðarkirkja (Hrútafirði)
Staðarkirkja er kirkja að Stað í austanverðum Hrútafirði. Kirkjan á Stað var reist árið 1884 úr timbri og tekur alls um 80 manns í sæti. Hún var endurbyggð á árunum 1983 til '86 sem næst að upprunalegri gerð. Yfir altarinu er tréskurðarskreyting. Forn altaristafla kirkjunnar sýnir heilaga kvöldmáltíð en hún er máluð á tré.
Staðarkirkja (Hrútafirði) | ||
Staður (3. júlí 2007) Eysteinn Guðni Guðnason | ||
Almennt | ||
Prestakall: | Prestbakkaprestakall | |
---|---|---|
Byggingarár: | 1884 | |
Breytingar: | 1983-86 | |
Arkitektúr | ||
Efni: | Timbur | |
Kirkjurýmið | ||
Sæti: | 80 | |
Staður var viðkomustaður landspóstsins áður en bílaumferð hófst yfir Holtavörðuheiði. Vestan Hrútafjarðarár á móts við Stað er verslunarstaðurinn Staðarskáli.
Tenglar
breyta- Staðarkirkja á kirkjukort.net Geymt 10 apríl 2016 í Wayback Machine