Stóra sænál
Stóra sænál (fræðiheiti: Entelurus aequoreus) er sænálartegund sem innfædd er í Norðaustur-Atlantshafi og eina tegundin í ættkvíslinni Entelerus. Stóra sænál er mjór fiskur og yfirleitt 20–60 cm að lengd. Á höfði hennar er löng trjóna með litlum munni sem vísar upp.[1]
Stóra sænál | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Entelurus aequoreus (Linnaeus, 1758) |
Stóra sænál finnst við Íslandsstrendur, aðallega við suðvesturhornið, en er þó ekki algeng. Hún hefur fundist í meira mæli undanfarin ár.[1]
Heimildir
breyta- ↑ 1,0 1,1 „Stóra sænál - Náttúrustofa Norðausturlands“. Sótt 18. febrúar 2018.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Stóra sænál.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Entelurus aequoreus.