Stígamót
Stígamót eru samtök kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi. Markmið samtakanna er að aðstoða þá sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og koma í veg fyrir slíkt ofbeldi. Stígamót voru stofnuð á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars 1990. Að stofnun komu Barnahópur Kvennaathvarfsins, Ráðgjafarhópur um nauðgunarmál, Kvennaráðgjöfin og Vinnuhópur gegn sifjaspellum eftir að hafa starfað að undirbúningi í eitt ár. Rekstur Stígamóta er fjármagnaður af styrkjum frá félagsmálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, nokkrum bæjar- og sveitarfélögum, en einnig með einkafjárframlögum og styrkjum frá fyrirtækjum og hagsmunasamtökum.
Stígamót eru með aðstöðu við Hverfisgötu 115 í Reykjavík.
Alþjóðlegt samstarf
breytaStígamót eru aðilar að fjórum norrænum og alþjóðlegum kvennasamtökum. Þau eru eftirfarandi;
- Norrænar konur gegn ofbeldi
- WAVE - women against violence in Europe
- International Abolitionist Federation
- Coalition Against Trafficking in Women