Sonora
Sonora er fylki í norðvestur-Mexíkó og er um 185.000 ferkílómetrar að stærð. Íbúar eru tæpar 3 milljónir og er höfuðborgin og stærsta borgin Hermosillo. Sonora á landamæri að fylkjunum Chihuahua, Baja California og Sinaloa. Í norðri er Arisóna og Nýja-Mexíkó bandaríkjamegin.
Sierra Madre Occidental-fjallgarðurinn er í austurhluta Sonora og er Kaliforníuflói í vestri. Loftslag er þurrt utan fjalllendis.