Skollakambur
Skollakambur (fræðiheiti: Struthiopteris spicant) er burkni sem er algengur um alla Evrópu.
Skollakambur | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||
Struthiopteris spicant (Lange) Wasowicz & Gabriel y Galán | ||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||
Á Íslandi er skollakambur fremur sjaldgæfur en vex á láglendi þar sem snjóþyngsli eru mjög mikil í fjörðum á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum. Smávaxinn burkni, tunguburkni (Struthiopteris fallax) var áður talinn vera afbrigði skollakambs en er nú flokkaður sem sértegund. Tunguburkni vex á jarðhitinu við Deildartunguhver en er ekki þekktur annars staðar og er hann alfriðaður.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Skollakambur.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Skollakamb.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Skollakamb.