Skólasöngur Menntaskólans á Akureyri
Skólasöngur Menntaskólans á Akureyri (MA) er fimmti hluti hátíðarljóðsins „Gagnfræðaskóli Norðurlands“ sem Davíð Stefánsson frá Fagraskógi samdi í tilefni fimmtíu ára afmælishátíðar Möðruvallarskóla og sem frumflutt var 31. maí 1930.[1] Páll Ísólfsson samdi tónlistina við hátíðarljóðið. Skólasöngur er sunginn við setningu skólans og skólaslit ár hvert.
Hátíðarljóðið „Gagnfræðaskóli Norðurlands“ var samið í tilefni skólahátíðar sem haldin var 31. maí og 1. júní 1930 á Möðruvöllum í Hörgárdal og á Akureyri. Þar var fagnað fimmtíu ára afmælishátíð Möðruvallarskóla, en það var fyrsti gagnfræðaskóli landsins og ætlað í upphafi að kenna verðandi bændum hagnýt fræði. Eftir brunann á Möðruvöllum var skólinn fluttur til Akureyrar og nafni hans var breytt í „Gagnfræðaskólinn á Akureyri“. Með lögum frá Alþingi árið 1930 fékk Gagnfræðaskólinn á Akureyri full réttindi menntaskóla og nefnist Menntaskólinn á Akureyri. Nýjum lögum um menntaskólaréttindi var því einnig fagnað á skólahátíðinni 1930.
Sigurður Guðmundsson skólameistari MA sem stýrði undirbúningi skólahátíðarinnar bað Davíð að semja veglegt hátíðarljóð í tilefninu. Ljóðið „Gagnfræðaskóli Norðurlands“ var prentað í dagskrá hátíðarhaldanna en var aldrei birt í ljóðabókum Davíðs. Ljóðið er í fimm hlutum og var sá síðasti strax gerður að skólasöng MA eftir frumflutninginn 1. júní 1930. Að jafnaði eru einungis fyrsta og síðasta erindið sungin en við skólaslit eru öll erindin sungin.
Skólasöngur Menntaskólans á Akureyri
breyta- Undir skólans menntamerki
- mætast vinir enn í dag.
- Sýnum öll í vilja og verki
- vöxt og trú og bræðralag.
- Forna dáð er fremd að rækja.
- Fagrir draumar rætast enn.
- Heill sé þeim, sem hingað sækja,
- höldum saman, Norðanmenn.
- Enn er liðinn langur vetur,
- loftin blá og jörðin græn.
- Hefji hver sem hafið getur
- huga sinn í þökk og bæn.
- Svo skal lofa liðna daga
- að líta fram og stefna hátt.
- Þá fær Íslands unga saga
- æðra líf og nýjan mátt.
- Allt skal lúta einum vilja.
- Allt skal muna þennan dag.
- Allir sem við skólann skilja
- skulu syngja þetta lag.
- Sýnum öll á sjó og landi
- sigurþrek hins vitra manns.
- Sýnum það að afl og andi
- eigi skóla norðanlands.
Skólasöngurinn loks útgefinn
breytaStarfsemi Kórs Menntaskólans á Akureyri hefur verið mismikil í gegnum tíðina. Skólasöngurinn hefur verið fastur liður á dagskrá og allrasíðustu ár hefur hann stundum verið sunginn í fjórum röddum. Árið 2001 var söngurinn gefinn út á diski þar sem kórinn flutti úrval íslenskra sönglaga undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.
Heimildir
breyta- Hátíðarljóð, kvæðaflokkur Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi úr Skólaskýrslu Menntaskólans á Akureyri 1929-1930.
- Nótur, handrit Páls Isólfssonar. Geymt 2 nóvember 2014 í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
- Um skólasöng MA af vef MA Sótt 7. maí 2010.
- „Kór Menntaskólans á Akureyri gefur út plötu: Skólasöngurinn á plötu í fyrsta sinn“, Dagblaðið Vísir – DV, 298 tbl., bls. 32, 28. desember 2001.
Tenglar
breyta- Hér má heyra Kór MA syngja fyrsta erindið undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Geymt 2 nóvember 2014 í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
- Dagskrá fyrir afmælishátíðina 1930 Geymt 8 nóvember 2014 í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
Tilvísanir
breyta- ↑ „Vefsíða MA um skólasöng menntaskólans“. Menntaskólinn á Akureyri. Sótt 15. janúar 2021.