San Juan (Púertó Ríkó)
San Juan er höfuðborg og stærsta sveitarfélag Púertó Ríkó sem er samveldisland Bandaríkjanna. Íbúar voru 343.000 árið 2020. Borgin var stofnuð af spænskum landvinningamönnum árið 1521 sem kölluðu hana Ciudad de Puerto Rico. Eyjan var þá kölluð San Juan Bautista. Með tímanum fékk eyjan nafn borgarinnar en borgin nafn eyjunnar.