Samtök um betri byggð

Samtök um betri byggð eru þverpólitískur þrýstihópur sem lætur sig málefni skipulags höfuðborgarsvæðisins varða. Samtökin voru stofnuð þann 14. febrúar árið 1999[1] og voru enn virk árið 2020[2]. Helsta baráttumál samtakanna hefur verið brottflutningur Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni. Einnig voru samtökin atkvæðamikil í baráttu gegn flutningi Hringbrautar sem þau töldu varasama aðgerð. Samtökin styðja lagningu Borgarlínu og leggja áhersu á núllsýn í vegamálum[2].

Megin boðskapur Samtaka um betri byggð er sá að höfuðborgarsvæðið sé of dreifð byggð til að þar þrífist mannvænlegt og hagkvæmt samfélag. Lausnin á þeim vanda felst að mati samtakanna meðal annars í að landið undir Reykjavíkurflugvelli verði tekið undir þétta borgarbyggð sem vaxi í nálægð og samhljómi við miðborgina.

Helsti talsmaður samtakanna var Örn Sigurðsson arkitekt.

  Þessi Reykjavíkurgrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  1. „Stofnun Samtaka um betri byggð á höfuðborgarsvæðinu“. www.mbl.is. Sótt 12. mars 2020.
  2. 2,0 2,1 Samtök um betri byggð. „Þingsályktunartilögur um samgönguáætlun 2020-2024-2034 / Umsögn Samtaka um betri byggð (BB) / Samantekt“ (PDF). Alþingi Íslands. Sótt 03 2020.