Sameyki
Sameyki er stéttarfélag sem stofnað var árið 2019 með samruna SFR og Starfsmannafélagi Reykjavíkur. Félagsmenn eru um 11.000 og er formaður þess Þórarinn Eyfjörð.
Félagsmenn Sameykis starfa við almannaþjónustu hjá ríki, borg og sveitarfélögum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu opinberra aðila.