Selja (tré)
(Endurbeint frá Salix caprea)
Selja (fræðiheiti: Salix caprea) er tré af víðiætt. Laufblöð hennar eru daufgræn og hærð á neðra borði. Hún getur orðið um 14 metrar á hæð og kýs hún sér búsetu í vetrarsvölu meginlandsloftslagi og í mildu strandloftslagi, jafnt í Evrópu og norð-austur Asíu. Á Íslandi hefur seljan þrifist meðal annars í Múlakoti þar sem hún er orðin 12 metra há á 50 árum og nýtur sín vel inn til landsins sunnanlands.
Selja | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Karlreklar Selju
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Ástand stofns: Ekki í útrýmingarhættu
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Salix caprea L. |
Trén þykja falleg garðtré, sérstaklega karltrén vegna fagurgulra reklanna.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Selja.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Selja.