SI grunneining
(Endurbeint frá SI grunneiningar)
Alþjóðlega einingakerfið (SI kerfið) hefur sjö grunneiningar, sem allar aðrar eðlisfræðilegar mælieiningar byggjast á. Skilgreiningum var síðast breytt smávægilega árið 2019.
Eining | Skammstöfun | Mælistærð |
---|---|---|
Kílógramm | kg | massi |
Metri | m | lengd |
Sekúnda | s | tími |
Amper | A | rafstraumur |
Kelvin | K | hiti |
Kandela | cd | ljósstyrkur |
Mól | mol | efnismagn |