Stúlknakór Selfoss - Ég sá mömmu kyssa jólasvein
(Endurbeint frá SG 576)
Stúlknakór Selfoss er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1973. Á henni flytur Stúlknakór Selfoss fjögur jólalög.
Ég sá mömmu kyssa jólasvein | |
---|---|
SG - 576 | |
Flytjandi | Stúlknakór Selfoss |
Gefin út | 1973 |
Stefna | Jólalög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Lagalisti
breyta- Ég sá mömmu kyssa jólasvein
- Snæfinnur snjókarl
- Jólasveinninn minn
- Þrettándi dagur jóla
Ég sá mömmu kyssa jólasvein
breyta- Ég sá mömmu kyssa jólasvein,
- við jólatréð í stofunni í gær.
- Ég læddist létt á tá
- til að líta gjafir á,
- hún hélt ég væri steinsofandi
- Stínu dúkku hjá,
- og ég sá mömmu kitla jólasvein
- og jólasveinnin út um skeggið hlær.
- Já sá hefði hlegið með
- hann pabbi minn hefð'ann séð
- mömmu kyssa jólasvein í gær.
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaÁ þessari hljómplötu eru fjögur jólalög, sem Stúlknakór Gagnfrœðaskólans á Selfossi söng m. a. inn á stóra plötu fyrir nokkrum árum, undir stjórn Jóns Inga Sigurmundssonar. Plata þessi hefur verið ófáanleg og þessvegna hafa fjögur beztu jólalögin af henni nú verið gefin út á lítilli plötu, er þar fremst í flokki jólalagið skemmtilega, Ég sá mömmu kyssa jólasvein, sem þessi ágœti kór gerði vinsœlt á sínum tíma. Öll eru ljóðin á plötunni eftir Hinrik Bjarnason. Síðasta lagið er gamalt þjóðlag en hin þrjú erlend. | ||