Sextett Ólafs Gauks - Segðu ekki nei
hljómplata frá 1967
(Endurbeint frá SG 516)
Sextett Ólafs Gauks og Svanhildur - Segðu ekki nei er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1967. Á henni flytja Sextett Ólafs Gauks og söngkonan Svanhildur fjögur lög.
Sextett Ólafs Gauks og Svanhildur - Segðu ekki nei | |
---|---|
SG - 516 | |
Flytjandi | Sextett Ólafs Gauks og Svanhildur |
Gefin út | 1967 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Lagalisti
breyta- Segðu ekki nei - Lag - texti: I. Hallberg - Ólafur Gaukur
- Bara þig - Lag - texti: Ólafur Gaukur
- Ef þú vilt vera mín - Lag - texti: Anderson - Ólafur Gaukur
- Því ertu svona uppstökk? - Lag - texti: Ólafur Gaukur
Segðu ekki nei
breyta- Út við gluggan stendur stúlkan og hún starir veginn á
- og hún bíður og hún vonar að hún vininn fái að sjá.
- En um síðir hringir síminn og hún svarar í hann fljótt,
- halló halló segir herrann viltu koma að dansa í nótt.
- Segðu ekki nei segðu kannski kannski kannski
- segðu að þú elskir engan nema mig.
- segðu ekki nei segðu kannski kannski kannski
- þá aldrei aldrei ég skilja mun við þig.
- Unga stúlkan hún er stórhrifin og strax hún segir já,
- arm í arm þau leiðast ungu hjúin ætla ballið á.
- Þegar hljóma ljúfu lögin lágt hún hvíslar heyrðu mig,
- viltu dansa þennan dans ég gjarnan dansa vil við þig.
- Segðu ekki nei osfrv..........
- Og í ljúfum draumi líður kvöldið loks er komin nótt,
- við trúum stundum tæplega hve tíminn líður fljótt.
- Og er vangi stríkur vanga blítt af vörum hvíslað er
- elsku litla sæta ljúfan má ég labba heim með þér.
- Segðu ekki nei osfrv....