Þuríður Sigurðardóttir - Fjórtán vinsæl lög
(Endurbeint frá SG 071)
Þuríður Sigurðardóttir - Fjórtán vinsæl lög er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1973. Ljósmynd á plötuumslagi tók Jóhannes Long.
Þuríður Sigurðardóttir - Fjórtán vinsæl lög | |
---|---|
SG - 071 | |
Flytjandi | Þuríður Sigurðardóttir |
Gefin út | 1973 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Lagalisti
breyta- Ég ann þér enn - Lag - texti: Reed/B. Mason — M. Ingimarss./Ó. Ragnarsson
- Bláu augun þín - Lag - texti: Gunnar Þórðarsson - Ólafur Gaukur
- Árin líða - Lag - texti: Matthías Á. Mathiesen - Ólafur Pálsson
- Vinur kær - Lag - texti: M. Carr/B. Nisbet — Guðm, Jónsson
- Játning - Lag - texti: Sigfús Halldórsson — Tómas Guðmundsson
- Bónorðið - Lag - texti: Lydiate — Ómar Ragnarsson - Vilhjálmur Vilhjálmsson syngur með
- Ég á mig sjálf - Lag - texti: Chris Andrews — Ómar Ragnarsson
- Í okkar fagra landi - Lag - texti: Hall — Þorsteinn Eggertsson
- Í dag - Lag - texti: Gunnar Þórðarson
- Í Reykjavík - Lag - texti: Hjördís Pétursdóttir - Jenni Jóns
- Ég vil að þú komir - Lag - texti: Gunnar Þórðarson
- Elskaðu mig - Lag - texti: S. Bono — Ómar Ragnarsson
- Minningar - Lag - texti: Gunnar Þórðarson — Jónas Friðrik - Pálmi Gunnarsson syngur með
- Ég er í ofsastuði - Lag - texti: R. og I.Berns — Ómar Ragnarsson
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaÁ þessari plötu er að finna öll þau lög, sem Þuríður Sigurðardóttir hefur sungið ein inn á hljómplötur, allt frá laginu Elskaðu mig, sem hún söng kornung inn á plötu með Lúdó-sextettinum og til lagsins Bláu augun þin, sem hún söng inn á síðasta ári. Þeir Vilhjálmur Vilhjálmsson og Pálmi Gunnarsson syngja með henni! sitt hvoru laginu. Að öllum öðrum söngkonum ólöstuðum leikur ekki minnsti vafi á, að Þuríður Sigurðardóttir ber af öllum öðrum, sem fást við að syngja dans- og dœgurlög hér á landi. Þess vegna œtti þessi plata að vera vel þegin af hinum stóra aðdáendahópi hennar. | ||