Saurvogsvatn
Saurvogsvatn (færeyska: Sørvágsvatn, einnig Vatnið og Leitisvatn) er stöðuvatn á eyjunni Vogum í Færeyjum. Vatnið er stærsta vatn Færeyja og er 3,4 ferkílómetrar að flatarmáli. Það liggur á milli bæjarfélaganna Saurvogs, Miðvogs og Vatnseyra.
Landafræði
breytaVatnið er 6 kílómetrar að lengd og allt að 800 metrar á breidd. Mesta dýpi er 59 metrar og er það dýpsta stöðuvatn Færeyja. Í suðri fellur Bøsdalaá úr því í fossinum Bøsdalafossi, sem er hæsti foss eyjanna, um 30 metrar, og fellur beint út í Atlantshafið. Þar rétt hjá er Trælanípa (142 m). Sagt er að á víkingatímanum hafi óvinnufærum þrælum verið varpað þaðan í hafið. Við norðurenda vatnsins er þorpið Vatnsoyrar sem er eina bæjarfélag Færeyja sem liggur ekki að sjó.
Saga
breytaVið upphaf hernáms Breta í seinni heimsstyrjöld var vatnið notað sem bækistöð sjóflugvéla, þar til lokið var við byggingu Vogaflugvallar.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Sørvágsvatn“ á dönsku útgáfu Wikipedia. Sótt 8. apríl 2011.