Sögur af landi
Sögur af landi er plata með íslenska tónlistarmanninnum Bubba Morthens sem kom út þann 9. október 1990. Líkt og flestar plötur Bubba á þessum tíma vann hinn sænski Christian Falk plötuna með Hilmari Erni Hilmarssyni. Að sögn Hilmars bætti Falk miklu við lögin.Til dæmis flautukaflann í laginu Síðasti örninn sem og endurskapað lagið Sonnetta. Í viðtali við Bubba í DV sagðist Bubbi vera að vinna að plötu undir nafninu RASK, en því heiti var skipt út fyrir Sögur af landi.
En þrátt fyrir að Bubbi bjóði ekki upp á margt nýtt á Sögum af landi fyrirgefst honum það einfaldlega vegna þess að þetta er skrambi góð plata. Bubbi virðist vera í mjög góðu jafnvægi, sáttur við lífið og tilveruna og umfram allt sjálfan sig. Allt þetta endurspeglast í tónlistinni og ekki síður í textunum sem eru betri og vandaðri en nokkru sinni fyrr Sigurður Þór Salvarsson, gagnrýnandi DV
Sögur af landi var síðasta plata Bubba með Christian Falk. Í ljóði í ljóðabók Öskraðu gat á myrkrið talaði Bubbi um Falk
hann gat tamið öll hljóðfærin
Þau hlýddu honum
eins og sirkusdýr
engin svipa bara ástríða
og fegurð hjartans
Lagalisti
breytaPlata eitt: A-hlið
- Sonnetta
- Laugardagsmorgunn
- Vals fyrir Brynju
- Fjólublátt flauel
- Að eilífu ung
- Blóðbönd
Plata eitt: B-hlið
- Síðasti örninn
- Stúlkan sem starir á hafið
- Guli flamingóinn
- Syneta
Á geisladiskaútgáfu plötunnar bætust eftirfarandi lög við
- Sú sem aldrei sefur
- Í kvöld er talað fátt
- Hann er laxveiðisjúklingur og veit ekki af því
Á sérútgáfu plötunnar sem kom út þann 6. júní 2006 í tilefni fimmtugsafmælis Bubba bættust eftirfarandi lög við
- Stúlkan sem starir á hafið (Hjátaka(
- Syneta (Hjátaka)
- Vals fyrir Brynju (Hjátaka)
- Sonnet (af plötunni Icebreakers)
- Last eagle (af plötunni Icebreakers)
- Bloodties (Hjátaka)