Ryan McPartlin
Ryan McPartlin (fæddur 3. júlí 1975 í Chicago, Illinois) er bandarískur leikari.
Ryan McPartlin | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Ryan McPartlin 3. júlí 1975 |
Helstu hlutverk | |
Capt. Awesome í Chuck |
Æska
breytaRyan er fæddur og uppalinn af Steve og Lois McPartlin í Geln Ellyn í Illinois (úthverfi Chicago). McPartlin útskrifaðist með gráðu í framkomu frá háskólanum í Illinois. Hann var meðlimur Fighting Illini fótboltaliðsins og var verðlaunaður fyrir að spila árið 1994.
Eftir útskrift ákvað Ryan að eyða sex mánuðum í Ástralíu og Nýja Sjálandi til þess að uppgvöta heiminn og ákveða hvað hann ætlaði að gera í framhaldinu. Hann komst að því að hann vildi verða leikari, svo hann flutti til Suður-Kaliforníu til að láta draum sinn rætast.
Ferill
breytaRyan varði nokkrum árum í það að vera Abercrombie & Fitch-módel.
Fyrsta leiklistarhlutverk Ryans var í The Nanny með Fran Drescher. McPartlin hefur verið best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Hank Bennett í sápuóperunni Passions en hann kom í staðinn fyrir Dalton James frá apríl 2001 til apríl 2004.
McPartlin vann með Drescher aftur sem Riley Martin í gamanþættinum Living With Fran. Hann lék miklu yngri kærasta. McPartlin fór í áheyrnarprufu fyrir hlutverk Clark Kent/Superman í nýju kvikmyndinni Superman Returns en fékk ekki hlutverkið.
Frá 2007-2012 lék hann Devon „Captein Awesome“ Woodcomb í Chuck.
Einkalíf
breytaRyan McPatlin er viðurkenndur einkaþjálfari.
Hann hefur verið giftur leikkonunni Danielle Kirlin síðan 26. október 2002.