Reitir fasteignafélag
Reitir fasteignafélag er þjónustufyrirtæki á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði á Íslandi. Fyrirtækið var stofnað árið 2009. Reitir hafa yfir að ráða fjölbreyttu fasteignasafni sem samanstendur af um 130 fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar um landið. Innan fasteignasafns Reita má finna verslunarhúsnæði í helstu verslunarmiðstöðvum landsins, fjölbreytt skrifstofuhúsnæði og margskonar lager- og iðnaðarhúsnæði. Meðal þekktra fasteigna má nefna Kringluna, Hótel Hilton, Hótel Reykjavik Natura, Kauphallarhúsið, Holtagarða og nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu sem staðsettar eru í miðbæ Reykjavíkur.
Reitir | |
Rekstrarform | Fasteignafélag |
---|---|
Stofnað | 2009 |
Staðsetning | Reykjavík |
Lykilpersónur | Guðjón Auðunsson, forstjóri Þórarinn Viðar Þórarinsson, stjórnarformaður |
Starfsemi | útleiga fasteigna |
Vefsíða | http://www.reitir.is/ |