Rafmynt eða dulmynt er stafrænn gjaldmiðill sem þróaður hefur verið til greiðslumiðlunar og viðskipta á netinu. Rafmyntir eru ekki miðstýrðar þar sem haldið er utan um rafmyntareign og færslur með bálkakeðjum (stafrænni höfuðbók) sem eru varðar með sterkri dulkóðun.

Orðið rafmynt á almennt við um dreifstýrðar rafmyntir eins og Bitcoin þar sem enginn miðlægur gagnagrunnur er til, þess í stað sammælast mismunandi tölvur um hver eigi hvaða pening t.d. með því að keppast við að leysa tímafrekar stærðfræðiformúlur, eftir á er hægt er að sanna hver sé réttmætur eigandi vegna þess að dulkóðun er notuð.[1] Önnur dæmi um stafræna gjaldmiðla eru sýndarmyntir sem eru notaðar í tölvuleikjum á við Eve Online og stafræna gjaldmiðla seðlabanka sem eru geymdir í gagnagrunni, frekar en sem efnislegir seðlar eða myntir.[2][3]

Tilvísanir

breyta
  1. Gylfi Magnússon (19.10.2017). „Hvernig virkar bitcoin og aðrar rafmyntir?“. Vísindavefurinn.
  2. Rafeyrir, Vísbending, 9. tölublað (06.03.1998), Blaðsíða 4
  3. „37/2002: Lög um rafeyrisfyrirtæki“. Alþingi.