Pecha kucha
Pecha kucha (japanska: ぺちゃくちゃ „blaður“) er framsetningamáti á glærukynningum þar sem hver flytjandi kynnir efni á nákvæmlega 20 glærum sem hver er sýnd í 20 sekúndur þannig að hver kynning í heild verður 6 mínútur og 40 sekúndur. Slík framsetning tryggir hraða og samþjappaða kynningu. Pecha kucha-framsetning er einkum notuð við kynningar tengdar hönnun og listum.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „PechaKucha“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 22. febrúar 2019.