Opeth
Opeth er sænsk framsækin þungarokkshljómsveit. Sveitin var stofnuð í Stokkhólmi árið 1990 af David Isberg en hann hætti fljótlega og Mikael Åkerfeldt, söngvari og gítarleikari, varð sá sem leiddi hljómsveitina.
Fyrstu plötur sveitarinnar einkennast af áhrifum úr dauðarokki, svartmálmi og framsæknu rokki. Lagasmíðar hljómsveitarinnar hafa yfirleitt verið langar og oft yfir 10 mínútur.[1] Á síðari stykkjum Opeth hefur dauðarokkið vikið og áhrif frá framsæknu rokki verið áberandi og hljómborð notuð meira. Steven Wilson (Porcupine Tree) vinur Åkerfeldts hefur hljóðritað nokkrar Opeth plötur.
Árið 2016 spilaði hljómsveitin á Eistnaflugi í Neskaupstað.
Núverandi meðlimir
breyta- Mikael Åkerfeldt – Gítar og söngur
- Martín Méndez – Bassi
- Fredrik Åkesson – Gítar og bakraddir
- Joakim Svalberg – Hljómborð, bakraddir og ásláttarhljóðfæri
- Waltteri Väyrynen – Trommur.
Fyrrum meðlimir
breyta- Anders Nordin – Trommur (1989–1997)
- Johan DeFarfalla – Bassi, bakraddir(1991, 1995–1997)
- Peter Lindgren – Gítar (1991–2007), bassi (1991)
- Martin Lopez – Trommur (1997–2006)
- Per Wiberg – Hljómborð, mellótrón, bakraddir (2005–2011, tónleikameðlimur frá 2003–2005)
- Martin "Axe" Axenrot – Trommur (2006-2021, tónleikameðlimur 2005-2006)
Breiðskífur
breyta- Orchid (1995)
- Morningrise (1996)
- My Arms, Your Hearse (1998)
- Still Life (1999)
- Blackwater Park (2001)
- Deliverance (2002)
- Damnation (2003)
- Ghost Reveries (2005)
- Watershed (2008)
- Heritage (2011)
- Pale Communion (2014)
- Sorceress (2016)
- In Cauda Venenum (2019)
- The Last Will And Testament (2024)
Tilvísanir
breyta- ↑ Tíu mínútna lágmark Mbl.is. Skoðað 5. október, 2016.