Oxford Classical Texts
(Endurbeint frá OCT)
Oxford Classical Texts eða Scriptorum Classicorum Bibliotheca Oxoniensis er ritröð sem gefin er út af Oxford University Press.
Í ritröðinni eru gefnir út textar á klassísku málunum, forngrísku og latínu, með textafræðilegum og handritafræðilegum skýringum í svonefndum apparatus criticus. Í ritröðinni eru birt verk flestra mikilvægustu höfunda fornaldar en þó yfirleitt ekki verk vísindalegs og stærðfræðilegs eðlis, líkt og t.a.m. verk Evklíðs. Í bókunum er formálinn ávallt á latínu sem og allar skýringar.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Oxford Classical Texts“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 30. apríl 2006.
Tengill
breyta- Oxford Classical Texts Geymt 23 september 2006 í Wayback Machine hjá Oxford University Press