Netfang
Netfang er auðkenni notanda tölvupósts. Það er samsett úr notandanafni og DNS-léni sem eru aðgreind með at-merki (@), venjulega borið fram „att“ eða „hjá“. Dæmi um netföng eru is@wikipedia.org
og wikipedia@example.com
.
Forskeytið mailto:
er skrásett hjá IANA og má því nota til að tilgreina að um netfang sé að ræða þegar maður slær það inn í vafraglugga eða í tengli í HTML-kóða. Einnig er hægt að bæta við eigindum svo sem subject
(efni) og body
(innihaldi) eftir ?
í slóðinni.