Neðri-Slesía (hérað)
Neðri-Slesía (pólska województwo dolnośląskie) er hérað í Suðvestur-Póllandi. Það var stofnað þann 1. janúar 1999 við sameiningu nokkurra eldri héraða. Stærsta borgin í héraðinu og höfuðborg þess er Wrocław. Árið 2011 voru íbúar héraðsins 2.856.000 samtals. Flatarmál héraðsins er 19.948 ferkílómetrar.