Nýjasta tækni og vísindi

Nýjasta tækni og vísindi er íslenskur sjónvarpsþáttur sem var upphaflega sýndur á árunum 1967-2004 og hóf svo aftur göngu sína árið 2020 á RÚV.

Nýjasta tækni og vísindi
TegundFræðsluþáttur
KynnirÖrnólfur Thorlacius (1967-1980)
Sigurður H. Richter (1974-2004)
Edda Elísabet Magnúsdóttir, Guðmundur Jóhannsson, Sigmar Guðmundsson
Sævar Helgi Bragason (2020- í dag)
UpprunalandFáni Íslands Ísland
FrummálÍslenska
Útsending
Upprunaleg sjónvarpsstöðSjónvarpið
Sýnt1967 – 2004; 2020 –

Þátturinn var í umsjón Örnólfs Thorlaciusar á árunum 1967-1974 en þá kom Sigurður H. Richter dýrafræðingur til liðs við þáttinn og sáu þeir um hann í sameiningu á árunum 1974-1980. Sigurður tók síðan alfarið við stjórn þáttarins þegar Örnólfur var skipaður rektor Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1980 og var Sigurður umsjónarmaður þáttarins á árunum 1980-2004.

Nýjasta tækni og vísindi var elsti þátturinn á dagskrá Sjónvarpsins að undanskildum fréttum og Stundinni okkar þegar hann tók langt hlé árið 2004.[1] Hann hóf aftur göngu sína þann 14. september 2020 eftir 16 ára hlé í umsjón Eddu Elísabetar Magnúsdóttur, Sigmars Guðmundssonar og Sævars Helga Bragasonar með innslögum frá Guðmundi Jóhannssyni.[2]

Tilvísanir

breyta
  1. . „Elsti þáttur Sjónvarpsins kveður“. Morgunblaðið. 92 (106) (2004): 36.
  2. https://www.ruv.is/frett/2020/09/13/er-ekki-kominn-timi-til-ad-profa-eitthvad-nytt