Nú árið er liðið í aldanna skaut
Íslenskur sálmur eftir Valdimar Briem frá árinu 1886
Nú árið er liðið í aldanna skaut er sálmur eftir séra Valdimar Briem, sem hann orti árið 1886. Hann er gjarnan sunginn við lag eftir Andreas Peter Berggreen.
- Nú árið er liðið í aldanna skaut
- og aldrei það kemur til baka,
- nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
- það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
- en minning þess víst skal þó vaka.
- En hvers er að minnast og hvað er það þá,
- sem helst skal í minningu geyma?
- Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
- það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
- En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.
- Hún birtist á vori sem vermandi sól,
- sem vöxtur í sumarsins blíðum,
- í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
- sem skínandi himinn og gleðirík jól
- í vetrarins helkuldahríðum.
- Hún birtist og reynist sem blessunarlind
- á blíðunnar sólfagra degi,
- hún birtist sem lækning við böli og synd,
- hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,
- er lýsir oss lífsins á vegi.
- Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
- og góðar og frjósamar tíðir,
- og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
- og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
- Allt breyttist í blessun um síðir.
- Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
- og góðar og blessaðar tíðir,
- gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
- gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
- og eilífan unað um síðir.