Nígerska karlalandsliðið í knattspyrnu
Nígerska karlalandsliðið í knattspyrnu er fulltrúi Níger í knattspyrnu og er stjórnað af knattspyrnusambandi landsins. Liðið hefur aldrei komist í úrslitakeppni HM en tvívegis keppt í Afríkukeppninni.
Íþróttasamband | (Franska: Fédération Nigerienne de Football) Nígerska knattspyrnusambandið | ||
---|---|---|---|
Álfusamband | CAF | ||
Þjálfari | Jean-Michel Cavalli | ||
Fyrirliði | Kassaly Daouda | ||
Leikvangur | Seyni Kountché leikvangurinn | ||
FIFA sæti Hæst Lægst | 128 (20. júlí 2023) 68 (nóv. 1994) 196 (ág. 2002) | ||
| |||
Fyrsti landsleikur | |||
2-2 gegn Tjad, 25. des. 1961. | |||
Stærsti sigur | |||
7-1 gegn Máritaníu, 12. okt. 1990. | |||
Mesta tap | |||
0-6 gegn Kongó, 17. júní 2007. |