Nærøysund (sveitarfélag)
Nærøysund er strandsveitarfélag í norðurhluta Þrændalaga í Noregi. Fjöldi íbúa í sveitarfélaginu er 10.014 (2023).
Stjórnsýslumiðstöð sveitarfélagsins er borgin Rørvik. Til sveitarfélagsins teljast einnig þéttbýlin Kolvereid og Ottersøya.
Stór hluti sveitarfélagsins samanstendur af Vikna-eyjaklasanum sem liggur vestan við sveitarfélagið.
Nærøysund liggur að sveitarfélögunum Leka í norðvestri, Bindal (Nordlandssýsla) í norðri, Høylandet í austri og Namsos í suðri.