Mjólkurbúð
Mjólkurbúð er verslun sem verslar nær eingöngu með mjólk og hvítan mat.
Mjólkurbúðir á Íslandi
breytaFarið var að stofna sérhæfðar mjólkurbúðir í Reykjavík um 1910 vegna krafna um aukið hreinlæti við meðferð mjólkurafurða. Í kjölfar afurðasölumálsins sem lyktaði með því að samvinnufélögin fengu einkaleyfi á sölu ýmissa landbúnaðarafurða voru allar mjólkurbúðir eftir 1934 reknar af Mjólkursamsölunni. Mjólk fékkst þá ekki seld í matvörubúðum, nema með vissum undantekningum. Síðasta mjólkurbúðin var lögð niður 1. febrúar 1977, en þá féllu úr gildi rúmlega 40 ára gömul lög varðandi mjólkursölu og matvöruverslanir tóku að sér alla smásölu mjólkurvara. Nokkrar sérhæfðar mjólkurbúðir störfuðu þó áfram um allt land í nokkur ár en reyndu að auka vöruúrval, meðal annars með sölu rjómaíss. Síðasta mjólkurbúð Mjólkursamsölunnar við Laugarveg 162 lokaði 1986. Mjólkurbúð á horni Háteigsvegar og Rauðarárstígs var breytt í bakarí um 1990.
Mörg kvörtunarbréf varðandi mjólkurbúðirnar voru skrifuð í blöðin þau ár sem búðirnar störfuðu. Var þá aðallega kvartað yfir lélegri afgreiðslu (og afgreiðslutímanum), óliðlegheitum starfstúlkna (eða fasi þeirra), vinnuálaginu sem á þeim var þegar mjólkin kom, aðstöðu búðanna og sum árin yfir því að ekki fengist mjólk, eða of lítið af henni. [1] [2] [3]
Mjólkurbúðir á Íslandi
breyta- Barónsstíg 59. (Lögð niður í desember 1965).
- Dunhaga 18
- Hjarðarhaga 47 (þar var Friðrikka Millý Müller lengi vel forstöðukona).
- Hrísateig 19
- Laugavegur 166
- Miðstræti 12