MemoQ
memoQ er þýðingaforrit sem keyrir á Microsoft Windows-stýrikerfi. Forritið er þróað af ungverska fyrirtækinu Kilgray Fordítástechnológiai Kft. (Kilgray Translation Technologies). memoQ gefur notendum kost á að nota þýðingaminni og hugtakagrunna og er með innbyggðan vélþýðingarmöguleika ásamt vefviðmóti.