Mánasteinsmári

(Endurbeint frá Melilotus officinalis)

Mánasteinsmári eða gulur steinsmári (fræðiheiti: Melilotus officinalis) er ein- eða tvíær belgjurt af ertublómaætt sem gjarnan er ræktuð sem fóður fyrir nautgripi, hross, sauðfé og geitur. Hann er einnig ræktaður sem fóðurplanta fyrir alibýflugur. Hann er þurrkþolnasta belgjurtin sem er almennt ræktuð.[1]

Mánasteinsmári
Humla (Bombus lapidarius) á mánasteinsmárablómi.
Humla (Bombus lapidarius) á mánasteinsmárablómi.
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur: Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ættbálkur: Belgjurtabálkur (Fabales)
Ætt: Ertublómaætt (Fabaceae)
Undirætt: Faboideae
Ættflokkur: Smárar (Trifolieae)
Ættkvísl: Steinsmárar (Melilotus)
Tegund:
M. officinalis

Tvínefni
Melilotus officinalis
(L.) Pall.

Eins og aðrar belgjurtir lifir mánasteinsmári í samlífi með rótarbakteríum sem binda köfnunarefni úr andrúmsloftinu og nýtist það plöntunni til vaxtar.

Tilvísanir

breyta
  1. Dan Ogle; Loren St. John; Mark Stannard & Larry Holzworth. „Grass, Grass-like, Forb, Legume, and Woody Species for the Intermountain West“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 28. desember 2016. Sótt 31. janúar 2019.
   Þessi grasafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.