Melatónín
Melantónín er hormón sem myndast í heilaköngli. Melantónín stillir dægursveiflu/líkamsklukku milli svefns og vöku. Ef birta í umhverfi er mikil þá hamlar það framleiðslu melatónín en framleiðsla melatóník eykst í lítilli birtu og það býr líkamann undir svefn.
Melatónín var uppgötvað árið 1958. Melatónín eru sums staðar notað sem fæðubótarefni gegn dægurvillu (flugþreytu) og svefnleysi. Það er lyfseðilsskylt í Bretlandi og var samþykkt sem lyf til lækninga af Evrópusambandinu árið 2007 en er ekki samþykkt sem læknislyf í Bandaríkjunum.
Heimildir
breyta- „Hvað er melatónín og hver eru áhrif þess á dægursveiflur?“. Vísindavefurinn.
- „Hvaða áhrif hefur dægurklukkan á svefn?“. Vísindavefurinn.
- „Hvernig vita frumur líkamans hvort það er dagur eða nótt?“. Vísindavefurinn.
- „Hafa verið gerðar einhverjar rannsóknir á áhrifum melatóníns á líkamann?“. Vísindavefurinn.
- „Hvað er dægurvilla og hve útbreitt er fyrirbærið?“. Vísindavefurinn.
- Melantónín (Lyfja) Geymt 26 september 2020 í Wayback Machine